Gerðuberg

 

Brautir - Sýning Alice Oliviu Clarke


Sýning í kaffihúsinu í Gerðubergi
7. apríl - 1. september 2010

Alice Olivia Clarke, mósaíkhönnuður, hefur búið og starfað á Íslandi frá árinu 1993. Hún rekur vinnustofu í Hafnarfirði þar sem hún vinnur að hönnun sinni og heldur námskeið þar sem hún kennir einstaka nálgun sína og tækni í mósaík. Nýlegt verk hennar er Tré lífsins 2009-2011 í Hafnarfjarðarkirkju. Kjarni verksins er tré í formi keltnesks kross sem laufgast næstu árin þegar fermingarbörn vinna hver sitt lauf og bæta við verkið. Meðal annarra þekktra verka má nefna veglegt veggverk á Bókasafni Hafnarfjarðar og tvær stórar veggmyndir á Kaffi Ólíver í Reykjavík.

Mósíkverk Alice á sýningunni Brautir eru frábrugðin öðrum verkum hennar að því leyti að hér hverfur hún frá þeirra litadýrð sem gjarnan eru einkennandi en hér gefur líta hvít verk og fáguð.

Alice Olivia Clarke mósaíkhönnuður er gestur á handverkskaffi aprílmánaðar í Gerðubergi. Þetta kvöld mun hún opna sýningu sína, segja frá listamannsferli sínum og kynna mósaík fyrir gestum.

Mósaík er mynd eða verk sett saman úr litlum mislitum brotum af flísum. Möguleikarnir í þessari tegund listsköpunar eru nær óþrjótandi en Alice er á meðal færustu listamanna landsins á þessu sviði.
Á handverkskaffinu mun hún segja frá verkum sínum, sýna myndbönd frá vinnslu stærri verka auk þess að vera með sýnishorn af efni og verkfærum á staðnum.

Sjá heimasíðu Alice Oliviu Clarke...

Sjá nánari upplýsingar um Handverkskaffið í Gerðubergi...

2010