Gerðuberg

 


Möguleikhúsið verður með aukasýningu á barnaleikritinu Langafi prakkari sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárns laugardaginn 10. apríl kl. 14.

Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið
mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð er
stuðst við bækurnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari.

Leikritið var fyrst sýnt árið 1999 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins.
Langafi prakkari sneri aftur í janúarbyrjun 2007 og hefur enn sem fyrr
notið mikilla vinsælda og eru sýningar nú orðnar rúmlega 260 talsins.
 
Í leikritinu segir frá lítilli stúlku, Önnu, og langafa hennar. Þó
langafi sé blindur og gamall er hann alltaf tilbúinn að taka þátt í
einhverjum skemmtilegum uppátækjum með Önnu litlu. Hann passar hana
alltaf á daginn þegar pabbi hennar og mamma eru í vinnunni. Þá hefur
hann nægan tíma til að sinna henni og þau gera ýmislegt skemmtilegt
saman. Þau skoða mannlífið, baka drullukökur, veiða langömmur og
fleira. Þetta er enginn venjulegur langafi …
 
Langafi og Anna eru leikin af þeim Pétri Eggerz og Aino Freyju Järvelä,
leikstjóri Pétur Eggerz, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir,
leikmynd er eftir leikhópinn og tónlist er gerði Vilhjálmur Guðjónsson.
 
Miðaverð er kr. 1.500 og tekið er á móti miðapöntunum
í s. 562-2669 og á moguleikhusid@moguleikhusid.is

2010