Tóney - Grannmetislög
Sunnudaginn 16. maí kl. 14.00 verða tónleikar í tónleikaröð Gerðubergs; Tóney í Gerðubergi.
Þar mun Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir ásamt Caput hópnum flytja ljóð úr bókinni Grannmeti og átvextir eftir Þórarin Eldjárn en lögin eru eftir Hauk Tómasson.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis.
Upptaka var gerð í Salnum í Kópavogi ári 2009 á ljóðunum og stefnt að því að diskurinn komi út á næstu dögum.
Aðrir flytjendur eru:
Kolbeinn Bjarnason á flautu, Eiríkur Örn Pálsson á trompet, Zbigniew Dubik á fiðlu, Sigurður Halldórsson á selló, Snorri Sigfús Birgisson á píanó. Stjórnandi er Guðni Franzson.
Tóney í Gerðubergi er tónleikaröð ætluð tónlistarunnendum á öllum aldri, með þátttöku leikinna sem lærðra, ungra sem aldinna, fjölbreytt efnisskrá í flutningi upprennandi tónlistarfólks jafnt sem atvinnumanna. Lögð er áhersla á breiða þátttöku, söng og hljóðfæraleik en einnig tengingu við heim leikhússins og dansins.
Gestgjafi og umsjónarmaður Tóneyjar í Gerðubergi er Guðni Franzson tónlistarmaður en hann er jafnframt stofnandi Tóneyjar; miðstöðvar fyrir tónlist, dans og sviðslistir, sjá www.toney.is.
Nánar um Guðrúnu Jóhönnu og Hauk Tómasson
Tónleikarnir eru um klukkustundar langir, án hlés og hefjast kl. 14.00.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri; holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is og í síma 575-7702 / 868-1851 eða Guðni Franzson; gudni@toney.is og í síma 862-4913.
2010