Breiðholt í upphafi
Úr safni Ljósmyndasafns Reykjavíkur
16. maí – 30. júní 2010
Á sýningunni Breiðholt í upphafi má sjá ljósmyndir úr safni Ljósmyndasafns Reykavíkjur sem teknar voru í Breiðholti á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Myndefnið er fjölbreytilegt en við val ljósmynda á sýninguna var haft að leiðarljósi að sýna uppbyggingu og börn. Það sem fyrir augu ber eru því framkvæmdir og fullbúin hús, börn að leik og fólk að störfum. Tíðarandinn skín vel í gegn á þessum stóru svart hvítu ljósmyndum. Einstaka persónur á myndunum eru nafngreinar en flestar þeirra óþekktar og nafnlausar – þekkir þú einhvern?
Sýningin stendur frá 16. maí til 30. júní 2010 og er opin virka daga kl. 11-17 og um helgar frá kl. 13-16. Athugið lokað er um helgar í júní.
Á sama tíma er í Gerðubergi ljósmyndasýningin Breiðholt – Í augnablikinu, sýning Friðgeirs Helgasonar í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík 2010.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur er eina sjálfstætt starfandi ljósmyndasafnið á landinu. Hlutverk þess er að varðveita ljósmyndir, glerplötur, filmur og skyggnur með þeim hætti að borgarbúar og gestir þeirra hafi sem bestan aðgang að ljósmyndum í eigu safnsins. Safninu er ætlað að byggja upp og varðveita safn íslenskra ljósmynda sem varpa ljósi á sögu greinarinnar, skrá það, varðveita og sýna. Safnið leitast við að afla myndasafna sem endurspegla sem best íslenskan ljósmyndaarf, sem og myndefnis sem tengist Reykjavík. Markmið safnsins er að kynna bæði sögulega og samtímaljósmyndun í listrænu, félags- og menningarlegu samhengi. Ljósmyndasafn Reykjavíkur er staðsett í Grófarhús ásamt Borgarbókasafni og Borgarskjalasafni, Tryggvagötu 15.
2010