Leikhús möguleikanna
Leiklistarnámskeið Möguleikhússins fyrir börn á aldrinum 9–12 ára
Námskeiðið fer að þessu sinni fram í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Á námskeiðinu er unnið með flest þau atriði sem tengjast hefðbundinni leikhúsuppsetningu. Námskeiðinu lýkur með leiksýningu, sem sýnd er í Gerðubergi í lok námskeiðsins.
Leiðbeinendur á námskeiðunum eru leikhúslistamenn sem hafa reynslu af að vinna í barnaleikhúsi. Námskeiðið hefst 7. júní og lýkur 25. júní. Unnið verður frá kl. 9.00 – 14.00, en lokadag námskeiðsins verður unnið frá kl. 11.00 – 18.00.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 20.
Þátttökugjald er 40 .000 kr.
Greiða þarf 10.000 kr. staðfestingargjald við skráningu.
Skráning fer fram í síma 562 2669 og á moguleikhusid@moguleikhusid.is.
Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna á slóðinni http://www.moguleikhusid.is/moguleikhusid/sumarnamskeid/
2010