Hugarflug
Aðalheiður Þórðardóttir - málverkasýning
26. ágúst - 17. október 2010
ATH. sýningartíminn hefur verið framlengdur til 24. október.
Aðalbjörg Þórðardóttir (f. 1951), eða Abba eins hún er oftast kölluð, sýnir olíumálverk í Gerðubergi undir yfirskriftinni Hugarflug. Yfir verkunum er heillandi og dulúðlegur blær.
Viðfangsefni Öbbu eru svanir en þeir eru fyrir margra hluta sakir heillandi viðfangsefni enda eru þeir mörgum heilagir og koma víða fyrir í sögnum og goðsögum. Svanirnir birtast sem náttúrufyrirbrigði, en ekki síður sem sagnaminni og táknmyndir sálar en Abba heillast ekki hvað síst að táknrænu gildi þeirra.
Hugleiðing listakonunnar:
„Til eru norrænar sagnir um valkyrjur sem gátu umbreyst í svani. Þær völdu úr menn, sem fallið höfðu í bardaga, og fóru með til Valhallar í veisluglaum Óðins. Sumar þeirra voru einskonar örlaganornir og væru þær af uppruna mannfólks gátu þær kosið sér mann til að elska og vernda.
Í alþýðumenningu víða um heim eru til sögur af svanameyjum, íðilfögrum meyjum sem áttu sér svanahami og gátu flogið. Mínar svanameyjar spretta hinsvegar alfarið upp úr eigin hugarflugi, þótt andblærinn úr sögunum hafi orðið eftir í sálu minni og smitast yfir á strigann.
Fegurð og tign svana hafa fengið manneskjuna til að velta upp grundvallarspurningum um tilvist sína, lífið, dauðann og guðdómleikann. Í Völuspá segir að vatnið í Urðarbrunni sé svo tært og heilagt að allt sem það kemst í tæri við verði hvítt eins og nýfallinn snjór. Allir svanir heimsins eru afkomendur svana sem drukku úr Urðarbrunni. Þeir eiga sér ævimaka og tryggð þeirra hvor við annan er slík að þeir hafa orðið tákn ástarinnar í vestrænni menningu.
Svanir eru heillandi viðfangsefni vegna margslunginnar táknrænu þeirra, einskonar hlekkur milli hins jarðneska og hins himneska; brú milli lífs og dauða. Í verkum mínum vinn ég með svani sem táknmynd sálar og mér finnst gott að dvelja í birtunni sem frá þeim stafar, – birtunni sem ég er ávallt að reyna að fanga.“
Aðalbjörg Þórðardóttir útskrifaðist sem BSc í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1979. Hún var við nám við Konstskolan
Hälsingborg 1984-1986 og lauk námi í grafískri hönnun frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1988. Aðalbjörg hefur starfað við hönnun, myndskreytingar og auglýsingagerð frá 1988, hérlendis og í Svíþjóð. Hún hefur setið í stjórn FÍT og var meðal stofnenda og í fyrstu stjórn Fyrirmyndar, félags myndskreyta. Aðalbjörg hefur setið sem varamaður í stjórn Nordiske Tegnere og verið í dómnefnd Dimmalimm barnabókaverðlaunanna. Síðastliðin áratug hefur hún fengist æ meira við málverkið. Aðalbjörg hélt einkasýningu í Galleríi Fold árið 2007 og aftur 2009.
Nánari upplýsingar um Öbbu má nálgast á heimasíðu hennar www.abba.is
2010