Gerðuberg

 

Jazzsöngsmiðja Kristjönu Stefáns


Miðvikudaginn 25. ágúst kl. 10-16
Kennari: Kristjana Stefánsdóttir
Meðleikari: Agnar Már Magnússon
Í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur

 

Kristjana StefánsdóttirÍ jazzsöngsmiðjunni fer Kristjana Stefánsdóttir, söngkona, yfir helstu stílbrigði í sungnum jazzi s.s. „ballad“, „medium swing“, „uptempo swing“ og „latin“. Einnig verður farið í spuna og blús.
 
Meðleikari og meðkennari verður Agnar Már Magnússon, píanóleikari. Kristjana og Agnar Már eru bæði starfandi kennarar við Tónlistarskóla FÍH og hafa í gegnum tíðina unnið mikið saman á tónlistarsviðinu.
 
Námskeiðið fer fram í Gerðubergi og hefst kl.10.00 og stendur til kl.16.00, matarhlé verður gert kl.12.30.
 
Það komast 10 virkir nemendur að en námskeiðið er opið til áheyrnar öllum þeim sem hafa áhuga á jazztónlist.
Nemendur þurfa að hafa stundað tónlistar- og/eða söngnám. Þeir þurfa að hafa undirbúið a.m.k. tvö lög í mismunandi stíl og hafa með sér nótur af þeim í sinni tóntegund.

Skráning: gerduberg@reykjavik.is

Kristjana Stefánsdóttir hefur verið leiðandi söngkona í íslenskri jazztónlist um árabil. Hún lauk með láði námi í jazzsöng frá Konunglega Listaháskólanum í Haag í Hollandi vorið 2000 undir handleiðslu Rachel Gold, en áður hafði hún lokið söngnámi við Söngskólann í Reykjavík og sótt einkatíma hjá Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Sigríði Ellu Magnúsdóttur. Kristjana lauk einnig námi í söngtækni hjá Cathrine Sadolin í Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn 2005.

Fyrsta geislaplata Kristjönu, Ég verð heima um jólin, með Kvartett Kristjönu Stefáns kom út 1996 (endurútgefin 2006) en þar eru engir ómerkari gestasöngvarar en Páll Óskar Hjálmtýsson og Emilíana Torrini. Hún hefur síðan hljóðritað bæði í eigin nafni og sem gestasöngvari og komið reglulega fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónleikum, bæði hérlendis og erlendis.

Nýjasta sólóplata Kristjönu kom út  2008 og ber nafnið Better Days Blues og inniheldur hennar eigin tónsmíðar og erlend lög í blús stíl. Hún sá um upptökustjórn og útsetningar sjálf.
Kristjana kemur reglulega fram með hljómsveitum á borð við Stórsveit Reykjavíkur sem starfar með stjórnendum á borð við Bob Mintzer, Frank Foster, Daniel Nolgard, Maria Schneider og Ole Kock Hansen. Nú nýverið hefur Kristjana farið ótroðnar slóðir í listsköpun sinni og starfað sem tónlistarstjóri í leikhúsi, tónskáld og ljáð trúðnum Bellu líf í Borgarleikhúsinu í Reykjavík.

Sjá nánari upplýsingar um feril Kristjönu Stefánsdóttur...
 

Agnar Már Magnússon hóf tónlistarnám sitt sex ára gamall við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar þar sem hann lagði fyrst stund á orgelleik en síðar píanó. Sextán ára lá leið hans í tónlistarskóla FÍH þar sem hann lauk prófi í djasspíanóleik með ágætiseinkun. Í beinu framhaldi fluttist Agnar til Hollands þar sem hann lauk háskólaprófi í djasspíanóleik og kennslu. Hann komst í kynni við bandaríska djasspíanistann Larry Goldings sem bauð Agnari að nema hjá sér í New York, sem hann gerði. Agnar hefur gefið út fjölda hljómdiska og hlotið verðlaun fyrir flutning sinn. Agnar Már starfar nú sem djasspíanisti en kennir jafnframt píanóleik við djassdeild Tónlistarskóla FÍH.

Sjá nánari upplýsingar um feril Agnars Más Magnússonar...

Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, s. 575 7702, netfang: margret.valdimarsdottir@reykjavik.is og Kristjana Stefánsdóttir, netfang: svalasjana@gmail.com.

2010