Hefðin heiðruð - jazzstandardar og bebop
Jazztónleikar fimmtudagskvöldið 26. ágúst 2010 kl. 20
Aðgangseyrir: kr. 2.000.-
Í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur
Sannkölluð jazzstemning ríkir í Gerðubergi í lok ágúst en þá mun Kristjana Stefáns stíga á svið ásamt félögum sínum og heilla áheyrendur með söng sínum.
Á þessum tónleikum mun Kristjana venda kvæði sínu í kross og fara í ræturnar á jazzsönglaginu og flytja ásamt félögum sínum valinkunn jazzsönglög og beboplög sem hún hefur sjálf útsett.
Flytjendur:
Kristjana Stefáns, söngur
Agnar Már Magnússon, píanó
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, kontrabassi
Scott McLemore, trommur
Tónleikarnir eru framlag Gerðubergs á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Kristjana Stefánsdóttir hefur verið leiðandi söngkona í íslenskri jazztónlist um árabil. Hún lauk með láði námi í jazzsöng frá Konunglega Listaháskólanum í Haag í Hollandi vorið 2000 undir handleiðslu Rachel Gold, en áður hafði hún lokið söngnámi við Söngskólann í Reykjavík og sótt einkatíma hjá Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Sigríði Ellu Magnúsdóttur. Kristjana lauk einnig námi í söngtækni hjá Cathrine Sadolin í Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn 2005.
Fyrsta geislaplata Kristjönu, Ég verð heima um jólin, með Kvartett Kristjönu Stefáns kom út 1996 (endurútgefin 2006) en þar eru engir ómerkari gestasöngvarar en Páll Óskar Hjálmtýsson og Emilíana Torrini. Hún hefur síðan hljóðritað bæði í eigin nafni og sem gestasöngvari og komið reglulega fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónleikum, bæði hérlendis og erlendis.
Nýjasta sólóplata Kristjönu kom út 2008 og ber nafnið Better Days Blues og inniheldur hennar eigin tónsmíðar og erlend lög í blús stíl. Hún sá um upptökustjórn og útsetningar sjálf.
Kristjana kemur reglulega fram með hljómsveitum á borð við Stórsveit Reykjavíkur sem starfar með stjórnendum á borð við Bob Mintzer, Frank Foster, Daniel Nolgard, Maria Schneider og Ole Kock Hansen. Nú nýverið hefur Kristjana farið ótroðnar slóðir í listsköpun sinni og starfað sem tónlistarstjóri í leikhúsi, tónskáld og ljáð trúðnum Bellu líf í Borgarleikhúsinu í Reykjavík.
Sjá nánari upplýsingar um feril Kristjönu Stefánsdóttur...
Agnar Már Magnússon - Sjá ferilskrá
Scott McLemore - Sjá ferilskrá
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson - Sjá ferilskrá
Jazzsöngsmiðja Kristjönu
Kristjana mun einnig bjóða upp á jazzsmiðju fyrir unga og upprennandi jazzsöngvara miðvikudaginn 25. ágúst.
Sjá nánari upplýsingar...
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, s. 575 7702, netfang: margret.valdimarsdottir@reykjavik.is og Kristjana Stefánsdóttir, netfang: svalasjana@gmail.com.
2010