Viðburðadagatal 2011
Sýningar sem opnuðu árið 2010
18. september – 30. júní
Bráðum koma blessuð jólin ...
Sýning á gömlum jólakortum, jólatrjám, jólaskrauti og leikföngum í Safnarahorni.
Í samstarfi við Árbæjarsafn og Fríðu frænku.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.
31. október – 13. mars
Ormurinn ógnarlangi ... söguheimur norrænnar goðafræði
Sýningin er á dagskrá Norrænu listahátíðarinnar í Reykjavík, ting.
Hönnun og sýningarstjórn: Kristín Ragna Gunnarsdóttir.
Boðið verður upp á leiðsagnir fyrir skólahópa. Sjá hér..
31. október – 16 . janúar
Hávamál
Sýning á myndskreytingum Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur.
Myndirnar munu birtast í bókinni Hávamál þar sem Þórarinn Eldjárn enduryrkir hina fornu speki fyrir börn.
3. nóvember – 9. janúar
Dægradvöl
Ágúst Jónsson sýnir abstrakt málverk í kaffihúsi.
11. nóvember - 16. janúar
Það vex eitt blóm fyrir vestan
Svava Sigríður Gestsdóttir sýnir vatnslitamyndir og málverk í Boganum.
________________________________________
5. og 7. janúar kl. 20
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
12. janúar kl. 20
Handverkskaffi - Gómsætir brjóstsykursmolar!
Andri Ómarsson kennir brjóstsykursgerð.
12. janúar - 13. mars
H2O - Ólíkar birtingarmyndir vatnsins
Páll Jökull Pétursson sýnir ljósmyndir í kaffihúsi.
16. janúar kl. 14-16
Syngjum og kveðum... um fugla og himininn
Taktu þátt í ljúfri söngstund með góðum gestum.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.
23. janúar kl. 14
Dimmalimm - Íslensku myndskreytiverðlaunin
afhent fyrir bestu myndskreyttu barnabókina 2010.
Í samstarfi við Eymundsson, Félag íslenskra bókaútgefenda og Myndstef.
23. janúar - 6. mars
Þetta vilja börnin sjá!
Sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum þar sem
sjá má frumgerðir mynda í bókum sem komu úr árið 2009.
29. janúar - 5. mars
Upphaflega var ekkert til
Ævintýraleg myndlistarsmiðja fyrir hugmyndarík börn á aldrinum 9-12 ára.
Í tengslum við sýninguna Ormurinn ógnarlangi. Sex laugardaga kl. 13-15.
30. janúar - 6. mars
Kjarninn
Sigríður Jónsdóttir sýnir málverk af landslagi og uppstillingum í Boganum.
FEBRÚAR
2. febrúar kl. 20
Handverkskaffi - Langar þig að læra að þrykkja?
Soffía Margrét Magnúsdóttir kynnir fjölbreyttar aðferðir við tauþrykk.
2. og 4. febrúar kl. 20
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
5. febrúar kl. 14
Langafi prakkari
Barnaleikrit byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn.
Miðaverð kr. 1.500.-
www.moguleikhusid.is
12. febrúar kl. 13-17
Heimsdagur barna
Listasmiðjur þar sem boðið verður upp á skemmtileg viðfangsefni úr heimi goðsagnanna.
Sjá MYNDASÝNINGU FRÁ ÞESSUM SKEMMTILEGA DEGI... (best að skoða hana í Firefox vafra)
13. febrúar kl. 14-16
Syngjum og kveðum... um fjölskylduna og börnin
Taktu þátt í ljúfri söngstund með góðum gestum.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.
19. febrúar kl. 14
Prumpuhóllinn
Barnaleikrit byggt á sögum Þorvalds Þorsteinssonar.
Miðaverð kr. 1.500.-
www.moguleikhusid.is
25. og 27. febrúar
Klassík í hádeginu - Hefurðu heyrt í rússneskri flautu?
Föstudag kl. 12.15 - 13.00 og sunnudag kl. 13.15 - 14.00.
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir.
Flytjendur: Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari.
26. febrúar kl. 14
Alli Nalli og tunglið
Barnaleikrit byggt á sögu Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Miðaverð kr. 1.500.-
www.moguleikhusid.is
MARS
2. mars kl. 20
Handverkskaffi - Listin að binda inn bók
Þröstur Jónsson kynnir hefðbundið bókband.
2. og 4. mars kl. 20
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
5. mars kl. 10.30 -13.00
Púkar og prinsessur
Barna- og unglingabókaráðstefna um lestraráhuga og framboð á lesefni fyrir stráka og stelpur.
6. mars kl. 14-16
Kanntu að búa til öskupoka og bolluvönd?
Komdu með í föndursmiðju með mömmu og pabba eða afa og ömmu. Allt efni á staðnum.
Í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands.
12. mars - 8. maí
(EI)land
Fimm pólskir ljósmyndarar og fimm íslenskir rithöfundar segja sögur með orðum og myndum af Íslandi.
Í samstarfi við Sputnic Photos í Póllandi og Listasafn Árnesinga.
13. mars - 8. maí
Með mínum augum
Erna S. Hartmannsdóttir sýnir olíumálverk og vatnslitamyndir í Boganum.
13. mars kl. 14-16
Syngjum og kveðum... um atvinnu fólks fyrr og nú
Taktu þátt í ljúfri söngstund með góðum gestum.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.
18. mars kl. 20
Bland í poka - Dægurperlur samtímans í jazzbúningi
Tónleikar Kristjönu Stefáns og Kjartans Valdemarssonar.
Aðgangseyrir: kr. 2.000.-
19. mars kl. 14-16
Vappaðu með mér Vala
Ása Ketilsdóttir kvæða- og sagnakona. Kveðskapur, tónlistar- og sagnaflutningur ásamt sýningu á æskuteikningum Ásu.
Í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar, Kvæðamannafélagið Iðunni og Strandagaldur.
19. mars - 1. maí
Þjóðlegt
Guðbjörg Ringsted sýnir málverk í kaffihúsi. Listakonan sækir innblástur í íslenskra útsaumshefð.
20. mars kl. 13-17
Jazzsöngsmiðja - Klassískt menntaðir söngvarar fá tilsögn í helstu stílbrigðum jazzsöngs.
Umsjón: Kristjana Stefánsdóttir og Kjartan Valdemarsson.
Dagskráin fellur niður...
25. - 27. mars
Klassík í hádeginu - Engilsaxneskir riddarar og rósir
Föstudag kl. 12.15 - 13.00 og sunnudag kl. 13.15 - 14.00.
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir.
Flytjendur: Ármann Helgason klarinettuleikari, Eydís Franzdóttir óbóleikari, Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari.
26. mars - 19. júní
Þorrablót
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fangar þorrablótsstemmningu fyrr og nú með skúlptúrum og lágmyndum.
APRÍL
2. apríl kl. 14
Gípugarnagaul
Frumsýning Möguleikhússins á barnaleikriti sem byggir á gömlum munnmælasögum og kveðskap.
Miðaverð: kr. 1.500
www.moguleikhusid.is
6. apríl kl. 20
Handverkskaffi - Páskaskreytingar
María Shramko kynnir hvernig skreyta má egg og búa til blóm úr sykri í tilefni páska.
9. apríl kl. 14
Gípugarnagaul
Sýning Möguleikhússins á barnaleikriti sem byggir á gömlum munnmælasögum og kveðskap.
Miðaverð: kr. 1.500
www.moguleikhusid.is
20. april kl. 17
Þorrablót
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir tekur á móti gestum og leiðir þá um sýninguna
29. apríl og 1. maí
Klassík í hádeginu - Voru Mozart og Beehoven vinir?
Föstudag kl. 12.15 - 13.00 og sunnudag kl. 13.15 - 14.00.
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir.
Flytjendur: Þóra Einarsdóttir sópransöngkona og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari.
MAÍ
4. maí kl. 20
Handverkskaffi - Karlinn sem hitti krókódílinn
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir sýnir hvernig upplifa má ævintýri með einföldum pappírsverkum.
14. maí - 29. maí
Listnemar útskrifast
Sýning á lokaverkefnum nemenda á myndlistarkjörsviði listnámsbrautar Fjölbrautarskólans í Breiðholti.
JÚNÍ
3. júní - 28. ágúst
Gagn og gaman - Myndir og minningabrot
Sýning á verkum eftir börn sem unnin voru í listasmiðjum Gagns og gamans
en þær voru lengi fastur liður í starfsemi Gerðubergs.
23. júní kl. 12.15 - 13.00
Jazz í hádeginu - The Tiny Trio
Perlur Jazz-söngbókarinnar fluttar af Hirti Steinarssyni á gítar, Jóhannesi Þorleikssyni á trompet og Leifi Gunnarssyni á kontrabassa.
Aðgangseyrir: Kr. 1.000.-
29. júní kl. 20
Franskir tónar
Tríó Vadims Fyodorovs leikur franskættaða tónlist.
Flytjendur: Gunnar Hilmarsson á gítar, Leifur Gunnarsson á kontrabassa og Vadim Fyodorov á harmoniku.
JÚLÍ
Menningarmiðstöðin Gerðuberg er lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá 1. júlí - 8. ágúst.
17. - 31. ágúst
Vídjóleigan
Teikniklúbburinn Tim Boomerang í félagsmiðstöðinni Tíunni í Árbænum sýna verk innblásin af ýmis konar bíómyndum,
s.s. hrollverkjum, vísindaskáldskap og sígildum Disney-myndum.
Leiðbeinandi hópsins er Harpa Rún Ólafsdóttir.
18. ágúst – 4. september
Samsekt - Diego Rivera og Frida Kahlo
Ástríða, list og pólitík í lífi mexíkósku listamannanna Fridu Kahlo og Diego Rivera.
Ljósmyndasýningin er í samstarfi við Sendiráð Mexíkó í Danmörku, Spænskudeild Háskóla Íslands og hin mexíkósku þjóðarsöfn lista og bókmennta, mannfræði og sögu.
Sýningarstjóri: Magdalena Zavala.
18. ágúst – 22. júní
Steinn – skæri - pappír og lyklar að himnaríki
Sýning í Safnarahorni.
Safnarar: Axel Kaaber, Guðrún Guðmundsdóttir, Helga Hansdóttir, Herdís Helgadóttir, Petra Sveinsdóttir, Sigurdís Björk Baldursdóttir.
Í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Söngkrybban Krí Krí
Mexíkósk söng- og danssmiðja fyrir 5-7 ára skólabörn.
Umsjón: Edna Lupita Mastache og Haydee Lira Nunez
SEPTEMBER
4. september – 16. október
Nýlist Ísland 2011
Ármann Kummer Magnússon alþýðulistamaður sýnir olíumálverk í Boganum.
4. september kl. 14
Gleðihringurinn
Kynslóðirnar dansa og syngja saman í anda gömlu góðu daganna
Umsjón: Karl Jónatansson og hljómsveitin Neistar í samstarfi við Dansskóla Sigvalda.
Aldurstakmark: 6-100 ára. Aðgangseyrir: 1.200 kr. Frítt fyrir 16 ára og yngri.
7. september kl. 20
Handverkskaffi - Blað skilur bakka og egg
Páll Kristjánsson hnífasmiður kynnir hnífagerð.
7. september – 9. október
Án tillits
Stefán Hermannsson sýnir myndir unnar á pappír með pastelkrít í kaffihúsinu.
10. september – 6. nóvember
LeikVerk
Hönnuðir, handverks- og listiðnaðarfólk sýnir verk sem öll tengjast
leik á einn eða annan hátt.
Sýningarstjóri: Anna Leoniak
Í samstarfi við Handverk og hönnun.
14. september kl. 20
Hverfiskaffi – Íbúasamstarf
Nýr vettvangur fyrir Breiðhyltinga og áhugafólk um íbúa- og skipulagsmál í Breiðholti.
Komið og ræðið málin yfir kaffibolla!
Umsjón: Lárus R. Haraldsson og Þorsteinn Hjartarson.
18. september kl. 14-16
Syngjum og kveðum... um haustið
Taktu þátt í ljúfri söngstund með góðum gestum.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster
21. september kl. 20
Heimspekikaffi - Hjálpsemi / Vinátta
Gunnar Hersveinn rithöfunudr stjórnar lifandi umræðum um hvernig æfa megi hjálpsemi
og rækta vináttu til að bæta samfélagið - að gefa öðrum er forsenda velgengni. Innlegg frá góðum gesti.
24. september kl. 14 – 16
Suðræn dansveisla
Dans- og tónlist frá Suður-Ameríku fyrir alla fjölskylduna.
Umsjón: Salsafélag Íslands
ATH. Dagskráin fellur niður af óviðráðanlegum ástæðum.
25. september kl. 14
Prumpuhóllinn
Möguleikhúsið sýnir leikritið Prumpuhóllinn eftir Þorvald Þorsteinsson.
Miðaverð kr. 2.000.-
www.moguleikhusid.is
28. september kl. 20
Bókakaffi – Mátti kerlingin ekki skrifa í friði?
Marín G. Hrafnsdóttir bókmenntafræðingur og langömmubarn Guðrúnar frá Lundi
segir frá lífi og höfundarverki skáldkonunnar.
Umsjón: Borgarbókasafn Reykjavíkur
OKTÓBER
Október – nóvember
Krummi krunkar úti – Lærum að kveða og syngja íslensk alþýðulög.
Skemmtileg og fræðandi dagskrá fyrir leikskólabörn.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster.
2. október kl. 14
Gleðihringurinn
Kynslóðirnar dansa og syngja saman í anda gömlu góðu daganna
Umsjón: Karl Jónatansson og hljómsveitin Neistar í samstarfi við Dansskóla Sigvalda.
Aldurstakmark: 6-100 ára. Aðgangseyrir: 1.200 kr. Frítt fyrir 16 ára og yngri.
5. október kl. 20
Handverkskaffi – Gersemar úr gleri
Listakonan Nadine kynnir glerperlugerð.
5. og 7. október
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
6. október kl. 17
Tækifæri í handverki og listiðnaði
Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar
fræðir gesti um tækifæri og atvinnusköpun í handverki og listiðnaði.
Í tengslum við sýninguna LeikVerk.
9. október kl. 14
Gýpugarnagaul
Möguleikhúsið frumsýnir barnaleikrit byggt á gömlum munnmælasögum og kveðskap.
Miðaverð kr. 2.000.-
www.moguleikhusid.is
12. október kl. 20
Hverfiskaffi – 111 Reykjavík
Vettvangur fyrir Breiðhyltinga og áhugafólk um íbúa- og skipulagsmál í Breiðholti.
Komið og ræðið málin yfir kaffibolla!
Umsjón: Elsa Hrafnhildur Yeoman
12. október – 20. nóvember
Trúir þú á töfra?
Vigdís Grímsdóttir rithöfundur sýnir í kaffihúsi myndir sem hún málaði samhliða skrifum nýrrar skáldsögu.
Aðalpersóna sögunnar er einmitt stelpa sem málar rauða ketti.
15. október kl. 15
Andblær liðinna ára
Sardas strengjakvartettinn og Agnes Amalía sópransöngkona flytja íslenskar dægurperlur eftir konur og franska tónlist í andblæ eftirstríðsáranna. Hugljúf ástarljóð og tregafullar ballöður í nýjum útsetningum Martins Frewer.
Aðgangseyrir: 1.500 krónur.
16. október kl. 14-16
Syngjum og kveðum... um fjöll, dali, ár og vötn
Taktu þátt í ljúfri söngstund með góðum gestum.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster
19. október kl. 20
Heimspekikaffi - Hamingja / Nægjusemi
Gunnar Hersveinn rithöfundur leiðir gefandi umræður um sterkt samband hamingju og nægjusemi - metnaður og sjálfsagi koma við sögu. Innlegg frá góðum gesti.
23. október – 27. nóvember
Mynstrin í náttúrunni
Vinir villtu kýrinnar sýna fjölbreytt myndverk í Boganum.
Leiðbeinandi hópsins: Dóra Rögnvaldsdóttir
24., 29. og 31. október
Sögur af stúlkum
Bókmenntanámskeið um skáldverk Vigdísar Grímsdóttur.
Kennari: Soffía Auður Birgisdóttir.
Námskeiðsgjald: Kr. 6.000.-
26. október kl. 20
Bókakaffi – Ferðadagbækur
Sigrún Eldjárn mætir með mis-rykfallnar ferðadagbækur sínar, segir frá þeim
og sýnir út þeim vel valdar, skrautlegar og skrítnar opnur.
Umsjón: Borgarbókasafn Reykjavíkur
30. október kl. 14
Alli Nalli og tunglið
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit eftir Pétur Eggerz byggt á sögum Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Miðaverð kr. 2.000.-
www.moguleikhusid.is
ATH: Sýningin fellur niður af óviðráðanlegum ástæðum.
NÓVEMBER
2. nóvember kl. 20
Handverkskaffi – Listin að marmorera pappír
Hildur Jónsdóttir bókbindari kynnir ævagamlar aðferðir við marmoreringu.
2. og 4. nóvember kl. 20
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
5. nóvember kl. 13.30 - 16.00
Ritþing - Stefnumót við Vigdísi Grímsdóttur
Vigdís gefur gestum innsýn í líf sitt og feril og les upp brot úr verkum sínum.
Stjórnandi: Jórunn Sigurðardóttir. Spyrlar: Hrafn Jökulsson og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir.
6. nóvember kl. 14
Gleðihringurinn
Kynslóðirnar dansa og syngja saman í anda gömlu góðu daganna
Umsjón: Karl Jónatansson og hljómsveitin Neistar í samstarfi við Dansskóla Sigvalda.
Aldurstakmark: 6-100 ára. Aðgangseyrir: 1.200 kr. Frítt fyrir 16 ára og yngri.
9. nóvember kl. 20
Hverfiskaffi – Fjölmenningarhverfið Breiðholt
Vettvangur fyrir Breiðhyltinga og áhugafólk um íbúa- og skipulagsmál í Breiðholti
Komið og ræðið málin yfir kaffibolla!
Umsjón: Ágústa H. Gísladóttir
12. nóvember – 8. janúar (framlengd til 22. janúar)
Perlur
Magdalena Margrét Kjartansdóttir sýnir tré- og dúkristur og þrykk á japanskan pappír.
Myndefnið er skáldskapur í bland við veruleika; kvenlíkaminn frá barnæsku til hinstu stundar.
12. nóvember – 8. janúar (framlengd til 22. janúar)
Málshættir í Fókus
Fókus félag áhugaljósmyndara sýnir ljósmyndir sem eiga það sameiginlegt að túlka íslenska málshætti.
16. nóvember kl. 20
Heimspekikaffi - Röksemi / Karpsemi
Gunnar Hersveinn rithöfundur leiðir bryddar upp á spennandi umræðu um hvernig skoðanir eru myndaðar - er hægt að breyta umræðunni á Íslandi með örfáum mælikvörðum? Innlegg frá góðum gesti.
19. nóvember kl. 13
Kellíngabækur: Konur kynna nýútgefin ritverk sín
Í samstarfi við Fjöruverðlaunahópinn.
20. nóvember kl. 14-16
Syngjum og kveðum... um mat og drykk
Taktu þátt í ljúfri söngstund með góðum gestum.
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster
23. nóvember – 15. janúar
Óbið
Bjarnheiður Bjarnadóttir og Óli Róbert Hediddeche sýna akrýl- og olíumálverk í kaffihúsi.
Sambræðingur tveggja listamanna, verk unnin sameiginlega og í sitt í hvoru lagi.
23. nóvember kl. 20
Bókakaffi – Nokkrar glóðvolgar
Starfsmenn Borgarbókasafns, þau Úlfhildur Dagsdóttir, Kristín Viðarsdóttir og Björn Unnar Valsson, kynna nokkrar forvitnilegar og spennandi bækur úr bókaflóði haustsins.
Umsjón: Borgarbókasafn Reykjavíkur
27. nóvember kl. 14
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit byggt á sögum Iðunnar Steinsdóttur.
Miðaverð kr. 2.000.-
www.moguleikhusid.is
DESEMBER
4. desember – 22. janúar
Horfinn heimur
Magnús Halldórsson sýnir akrílverk og verk unnin með blandaðri tækni í Boganum.
4. desember kl. 14
Jólarósir Snuðru og Tuðru
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit byggt á sögum Iðunnar Steinsdóttur.
Miðaverð kr. 2.000.-
www.moguleikhusid.is
7. desember kl. 20
Handverkskaffi - Pakkapökkun
Megan Herbert kynnir skrautlega jólagjafainnpökkun
7. og 9. desember kl. 20
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
Allir velkomnir!
19. og 20. desember kl. 20
Kortér í jól
Jóla-jazztónar í Gerðubergi
Flytjendur: Valdimar Guðmundsson söngvari, Kristján Tryggvi Martinsson píanóleikari og Leifur Gunnarsson bassaleikari.