Heimspekikaffi - Gott | Illt
Miðvikudaginn 18. janúar 2012, kl. 20
Umsjón: Gunnar Hersveinn
Heimspekikaffið var nýjung sem sló í gegn í dagskrá Gerðubergs síðastliðið haust. Fullt var út úr dyrum á kaffihúsinu þar sem lifandi umræður urðu um vináttu, hjálpsemi, hamingju, nægjusemi, röksemi og karpsemi. Áfram verður haldið með þessa dagskrá og nú verða tekin fyrir ný hugtök sem iðulega brenna á hverri samtíð.
Gunnar Hersveinn, heimspekingur og rithöfundur, leiðir umræðuna og fær til sin góða gesti sem verða með stutt innlegg. Gestur kvöldsins er Þórdís Elva Þorvaldsdóttir rithöfundur og í kvöld verður fjallað um gott og illt. Rætt verður um hvaða siðareglur geti sameinað öll mannleg samfélög og unnið bug á illskunni. Hvernig byggjum við upp innri varnir gegn illskunni? Hvað er gott og hvað illt? Enginn má leiða þessa spurningu hjá sér því við þurfum ævinlega að bregðast við illsku og ofbeldi.
Gunnar Hersveinn hefur tekið virkan þátt í samfélagsumræðunni til margra ára og skrifað bækur um gildi lífs og þjóðar. Þær heita Gæfuspor - gildin í lífinu, Orðspor - gildin í samfélaginu og Þjóðgildin - sprottin af visku þjóðar. Hann hefur jafnframt gefið út ljóðabækur, nú síðast ljóðaumslagið Sjöund. Gunnar Hersveinn hefur einnig starfað sem blaðamaður og hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir greinaskrif og framlag sitt sem samfélagsrýnir.
Þórdís Elva hefur skrifað bókina Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, auk þess sem hún stofnaði jafnréttisátakið Öðlinginn.
Viðbótarefni fyrir áhugasama:
GH: www.lifsgildin.is
ÞEÞ: www.odlingurinn.is
Handverkskaffi - dagskrá vorið 2012
Stefnumótakaffi - dagskrá vorið 2012
Heimspekikaffi - dagskrá vorið 2012
Bókakaffi - dagskrá vorið 2012
2012