Gerðuberg

 

Bókakaffi - "Þetta er nú dynur hins nýja tíma, Þuríður mín"


Miðvikudaginn 25. apríl 2012, kl. 20

 

Bjarni Guðmundsson er fæddur á Kirkjubóli í Dýrafirði 18. ágúst 1943. Bjarni varð Búfræðingur frá Hvanneyri 1962 og búfræðikandídat 1965. Hann lauk síðan Licentiatprófi í búvísindum frá Búnaðarháskólanum í Ási í Noregi 1971.

Bjarni hefur verið prófessor í bútækni við Landbúnaðarháskólann og stundað rannsóknir á verkun fóðurs (heys, korns) og tækni við fóðuröflun. Bjarni lauk föstu starfi við skólann í ágúst 2008 og sinnir nú sérverkefnum á vegum hans í hálfu starfi. Bjarni svarar fyrir Landbúnaðarsafn Íslands (www.landbunadarsafn.is ) og fæst við búnaðarsöguleg viðfangsefni.

Ört vaxandi þjóð, sem bjó við áður óþekkta velmegun að nýlokinni heimsstyrjöld, krafðist stóraukinna afkasta í landbúnaði – afkasta sem ekki varð náð nema með vélvæðingu sveitanna. Þar skiptu heimilisdráttarvélarnar sköpum. Bjarni er hafsjór af fróðleik um þessa umbrotatíma og hefur unnið einstakt verk við skráningu þeirra og út hafa komið bækurnar

… og svo kom Ferguson og Alltaf er Farmall fremstur. Í Bókakaffinu verða sagðar traktorasögur.


 Upplýsingar um traktorabækur Bjarna má nálgast hér.

 

Viðburður í Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO

 

 

 

 

 

 

 

2012