Heimsdagur barna - Magnað myrkur
Menningarmiðstöðin Gerðuberg og Frístundamiðstöðin Miðberg
Laugardaginn 11. febrúar 2012 kl. 13-17
Aðgangur ókeypis - allir velkomnir!

Á Heimsdegi barna 2012 gefst gestum kostur á að sækja listasmiðjur þar sem boðið verður upp á viðfangsefni úr töfraveröld íss og myrkurs. Snædrottningar, ískristallar, draugar og margt, margt fleira! Börnum og fullorðnum gefst tækifæri til að spreyta sig, hægt er að búa til sitt eigið hljóðfæri, taka þátt í dansi, gera sér búning, bragða á ristuðum möndlum úti við, gera svellþrykk, ganga í gegnum draugahús o.fl.
Viltu prenta út dagskrána? Smelltu hér... Heimsdagur barna
Would you like to print out the Programme? Click here... International Children´s Day
Spænska - Día mundial del niño. Albanska - Dita ndërkombëtare e fëmijëve. Tælenska - วันเด็กโลก. Litháísku - Pasaulio Vaikų Diena. Pólska - Światowy Dzień Dziecka. Rússneska - Детский праздник «Вокруг света».
Dagskrá - s m i ð j u l ý s i n g a r
Töfrahljóðfæri álfanna
Hljómurinn úr töfrahörpu álfanna fær fólk í mannheimum til að sofna svo ekki er unnt að vekja það aftur nema með því að blása í álfahornið. Álfadrottningin á líka töfrahljóðfæri, sérstaka frostflautu sem hún spilar á til að kalla fram snjó og frost. Komdu og gerðu þín eigin álfahljóðfæri. Smiðjustjóri: Pamela De Sensi
Draumur í dós
Allir eiga sér drauma, en vissir þú að hægt er að geyma þá í dós? Útbúðu þína eigin draumadós með lýsandi stjörnum sem tákna þínar vonir og þrár. Kíktu svo í dósina þegar þú þarft að rifja upp drauminn og láttu þig dreyma í dós.
Smiðjustjóri: Þórdís Halla Sigmarsdóttir
Leikbrúðusmiðja álfanna
Snædrottningin hefur hneppt skóginn í álög, ljós- og myrkraálfar hafa tekið höndum saman og vilja fá þig til að hjálpa sér að leysa vini sína úr álögum. Lærðu að búa til þína eigin skuggabrúðu og prófaðu hana í skuggaleikhúsinu, með því leysir þú skóginn úr álögum.
Smiðjustjóri: Guðrún Vera Hjartardóttir
Hrollvekjuhúsið
Í myrkrinu leynast skuggalegar kynjaverur sem flestir varast að mæta á köldum vetrarnóttum. Þau ykkar sem þora, komið og bankið uppá í hrollvekjuhúsinu og látið ærsladrauga og aðrar myrkraverur hræða úr ykkur líftóruna. Aðeins fyrir þau allra hugrökkustu.
Smiðjustjóri: Jón Víðis Jakobsson
Snædrottningar og kóngar
Vetrarríkið er veröld snædrottningarinnar og snækóngsins. Klæði þeirra eru ævintýralega fögur, glitra og ljóma í myrkrinu. Verið velkomin í búningasmiðju drottningarinnar þar sem öllum er boðið að gera sinn eigin búning í anda vetrarríkisins.
Smiðjustjóri: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir
Seiðandi flamenco Minervu
Við mánaskin má heyra taktfastan trommuslátt og í myrkrinu sjást dansandi skuggaverur. Þegar saman koma töfrar flamencodansins og kraftur afrísku trommunnar verður úr því galdur sem bræðir hörðustu steinhjörtu. Láttu það eftir þér að dansa í takti framandi landa og slepptu fram af þér beislinu í spuna! Undir Ís-landinu krauma eldar.
Smiðjustjóri: Minerva Iglesias
Glitrandi kóngulóarspuni
Þorir þú að vera kónguló í smástund og spinna þinn eigin glitrandi ljósvef í rökkrinu? Kóngulóin er meistari þráðlistarinnar og kóngulóarvefurinn bæði listaverk og náttúruundur. Gerðu þitt eigið spunaverk úr endurskinsþræði og perlum svo úr verði lífsnauðsynlegt ljós í myrkri.
Smiðjustjóri: Bjargey Ingólfsdóttir
Draugaveiðar
Tími drauganna er runninn upp! Draugarnir fela sig í myrkrinu en með töfrabrögð og myndavél að vopni getum við gert þá sýnilega. Komdu við og svalaðu forvitninni, fangaðu draugana á ljósmynd og ljáðu þeim rödd þína. Árangur draugaveiðanna er sýndur á hreyfimynd á staðnum.
Smiðjustjóri: Verena Faisst
Meistari hugans
Vissir þú að hægt er að stjórna tölvuleik með hugarorkunni einni saman? Við getum fylgst með því hvernig nota má einbeitingu hugans til að beygja skeiðar sem uppvakningurinn ætlar að nota til að éta úr manni heilann. Magnað hverju einbeiting og slökun getur áorkað!
Smiðjustjóri: Deepa Iyengar
Óskaloftbelgir
Loftbelgir eru brú milli jarðar og himins, þeir tengja mannfólkið við himininn. Óskabelgir flytja óskir, von og gæfu til himins á ljósahátíðum um víða veröld. Sendu þínar heitustu óskir æðri máttarvöldum með óskaloftbelgnum þínum.
Smiðjustjóri: Björn Finnsson
Stjörnuregn
Stjörnur á himnum sér maður best í mögnuðu myrkri. Sagt er að sjái maður stjörnuhrap sé hægt að óska sér, aðrir trúa á óskastjörnur. Með stjörnur í augum búum við til okkar eigin glitrandi óskastjörnu.
Smiðjustjóri: Guðmunda Óskarsdóttir
Klakastyttur
Í klakanum búa töfrar, séu þeir leystir úr klakaböndum verða til kristaltær listaverk. Ísdrottning, fagurlega skapað snjókorn ásamt öðrum undrum vetrarríkisins eru meðal þess sem meistarinn mun skapa. Fylgstu með Íslandsmeistaranum í klakaskurði skera út klakastyttur á torginu. Umsjón: Ottó Magnússon
Möndlusnakk Dimmuborga
Þrír árar standa yfir potti sínum og rista möndlur, ofurfæðu sem aðeins hinir hugrökku fá. Ilmurinn er lokkandi og verða árarnir að berja frá sér púka, afturgöngur og fleiri kvikindi sem vilja seilast í möndlurnar. Þorir þú framhjá kvikindunum til að bragða á góðgætinu?
Smiðjustjóri: Ævar Örn Magnússon
Frostrósir og snjókristallar
Þegar frost er á Fróni getur þú prófað að mála á svell þínar eigin vetrarmyndir. Þegar pappír er lagður á klakann þrykkist spennandi mynd á blað. Svellþrykkt verk Páls á Húsafelli sem eru til sýnis í Gerðubergi um þessar mundir gefa okkur innblástur.
Smiðjustjóri: Óli Róbert Hediddeche
Lokahátíð kl. 16-17
Hátíð íss og myrkurs!
Heimsdegi barna lýkur með því að allir þátttakendur hópast út á torgið á milli Gerðubergs og Miðbergs. Stelpurnar í listasmiðjunni Litrófi leiða gesti í söng og dans og frumflytja hljóðverkið Magnað myrkur. Snædrottningar og kóngar viðra klæði sín, leikið verður á nýgerð álfahljóðfæri, spunaverk glitra og dansspor verða stigin. Hyllum saman hið magnaða myrkur!
Ekki missa af Heimsdegi barna í Gerðubergi!
Heimsdagur barna í Gerðubergi er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík, nálgast má upplýsingar um Vetrarhátíð hér.