Fyrir augum hinna yngstu
Laugardaginn 3. mars 2012, kl. 10.30 - 13.30.
Árleg barna- og unglingabókaráðstefna. Aðgangur ókeypis.

Að þessu sinni er fjallað um bækur fyrir yngstu börnin.
Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir hefur verið fastur liður í dagskrá Gerðubergs frá árinu 1998. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við IBBY á Íslandi, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Rithöfundasamband Íslands - Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Félag fagfólks á skólasöfnum og Upplýsingu – Félag bókasafns- og upplýsingafræða.
Eftirfarandi einstaklingar halda erindi á ráðstefnunni:
Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir – Bókmenntafræðingur, lektor við Háskóla Íslands
„Api, c, d, e, f, g, ettir kemur h, í, k, ellimenn og einnig p. Atla é kúðar standi hjá.“
Erindi Önnu fjallar um málrækt, leik og læsi í leikskólum. Barnabókmenntir gegna lykilhlutverki í málörvun og þróun læsis ungra barna. Það er því mikilvægt að lesa mikið fyrir börn, bæði á heimilum og í leikskólum. Barnabókmenntir eru líka hluti af barnamenningu og leggja meðal annars grunn að bókmenntalæsi. Lestrarstundir eiga fyrst og fremst að vera uppspretta gleði og ánægjulegrar samveru. Ef vel er á málum haldið efla samræður um persónur og efni bóka til dæmis orðaforða, málskilning og lífsleikni sem skiptir máli fyrir lesskilning. Þótt engin krafa sé gerð um lestrarkennslu í nýrri aðalnámskrá leikskóla hefur aukin umræða um læsi engu að síður haft mikil áhrif á leikskólastarf. Það færist í vöxt að leikskólar hafi formlega lestrarkennslu í sinni námskrá en um þá þróun eru skiptar skoðanir.
Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir (f. 1957) er lektor í íslensku við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Helsta fagsvið hennar eru barnabókmenntir og þjóðsögur. Hún kennir einnig verðandi leikskólakennurum um málörvun barna og þróun læsis á leikskólaárunum.
Ásmundur K. Örnólfsson - Leikskólakennari og aðstoðarleikskólastjóri á Ægisborg
Lestur leikskólamanns.

Í erindinu hugsar leikskólakennari upphátt um lestur sinn, og nánustu starfsfélaga sinna, fyrir börn síðast liðin 20 ár. Hvað hefur verið lesið og hvers vegna? Hvaða sögur hafa staðist tímans tönn og hvað er lesið núna. Ásmundur tengir erindið umræðunni um læsi og lestrartileinkun barna, þá sérstaklega drengja. Hann varpar fram þeirri spurningu hvort leikskólar á Íslandi séu kvennaheimur og hvaða áhrif það hefur á hvað er lesið fyrir börnin. Ásmundur segir einnig frá verkefni sem unnið er á Ægisborg um ritmálsörvun barna til að vekja forvitni þeirra á leyndarmáli lestursins. Hann fjallar einnig um samverustundir og muninn á því að lesa eða segja sögur.
Ásmundur K. Örnólfsson (f. 1968) hefur yfir tuttugu ára reynslu af starfi í leikskóla. Ásmundur er leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands, en hefur einnig BA-gráðu í íslensku frá Háskóla Íslands. Hann hefur lengi verið áhugamaður um bækur fyrir börn, lestur fyrir börn og lestrartileinkun barna svo og sagnaskemmtun. Ásmundur er aðstoðarleikskólastjóri á leikskólanum Ægisborg í Reykjavík.
Bryndís Loftsdóttir - Vörustjóri íslenskra bóka hjá Eymundsson
Sala íslenskra barnabóka – þróun síðustu ára og brýnustu verkefni.
Erindi Bryndísar fjallar um söluþróun barnabóka frá árinu 2007. Hún skoðar á hvern hátt sala og jafnvel útgáfa íslenskra barnabóka hefur breyst eftir efnahagshrunið, í hvaða flokkum sveiflurnar liggja og hvort þær geti talist ásættanlegar, til dæmis með tilliti til þróunar á sama tíma í sölu fullorðinsbóka. Bryndís rýnir einnig fram í tímann með því að bregða ljósi á brýnustu verkefni íslenskra höfunda, bókaútgefenda og bóksala á næstu árum.
Bryndís Loftdóttir (f. 1970) lauk leikaranámi frá The Academy of Live & Recorded Arts í London. Hún hefur verið viðloðandi bóksölu frá árinu 1991, fyrst hjá Bókabúð Máls og menningar en síðar hjá Eymundsson. Hún var verslunarstjóri í Eymundsson Austurstræti í nokkur ár en hefur starfað sem vörustjóri íslenskra bóka fyrir allar Eymundsson verslanirnar síðast liðin 10 ár. Bryndís var einn stofnenda Félags starfsfólks bókaverslana og „Bóksalaverðlaunanna“ árið 2000, tók þátt í skipulagningu á norrænni ráðstefnu bóksala árið 2005 og hefur sl. 3 ár setið í dómnefnd íslensku myndskreytiverðlaunanna Dimmalimm.
Áslaug Jónsdóttir - Myndlistamaður og rithöfundur
Velkominn í heiminn... - þankar um myndabókina, höfundinn og lesandann.

Bækur Áslaugar fyrir yngstu börnin verða til jöfnum höndum með myndum og orðum enda er bakgrunnur hennar í myndlistinni. Í erindi sínu mun Áslaug spjalla um það sem fyrir augu ber þegar hún skrifar og myndskreytir sögur fyrir börn. Áslaug ræðir hvernig hún vinnur, hvernig hugmyndir verða til og hvernig þær mótast sem og fjarveru eða nærveru lesendanna við þá vinnu. Hún veltir einnig fyrir sér hvað ratar í bækur fyrir yngstu börnin og hvers vegna.
Áslaug Jónsdóttir (f. 1963) útskrifaðist frá teikni- og grafíkdeild Listiðnaðarskólans í Kaupmannahöfn árið 1989 (Skolen for Brugskunst - Danmarks designskole). Frá því að hún lauk námi hefur Áslaug starfað sem myndskreytir, grafískur hönnuður, rithöfundur og myndlistamaður. Hún hefur skrifað og myndskreytt fjölda barnabóka, skrifað barnaleikrit og sjónvarpsefni fyrir börn. Bækur hennar hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín.
Fundarstjóri: Einar Ólafsson, bókavörður og skáld
Viðburður í Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO
Nálgast má auglýsingaveggspjald fyrir ráðstefnuna hér.
2012