Gerðuberg

 

Staðreynd 5... brotabrot... oggolítill óður til kviksjárinnar


Myndbands/ hljóðinnsetning

30. maí kl. 17.30 - Arna Valsdóttir leiðir gesti um sýninguna

 

Arna Valsdóttir nam myndlist við MHÍ og Jan van Eyck academie í Hollandi þaðan sem hún lauk námi 1989. Arna hefur síðan unnið verk þar sem hún nýtir eigin rödd í margvísleg rýmisverk og gjörninga, bæði sem videoverk og innsetningar og um tíma vann hún raddteikningar fyrir útvarp. Á árunum 2004 - 2009 ferðaðist hún um með gagnvirkt efni sem hún nefndi ,,Ég er ögn í lífrænni kviksjá" og setti það upp í margvíslegum rýmum, m.a. Garðskagavita, á Nýlistasafninu og í Hafnarfjarðarleikhúsinu, en einnig í skólum og á ráðstefnum. Tók verkið lit og lögun af hverjum stað og þeim gestum sem hann sóttu. Kviksjána setti Arna upp í Gerðubergi á Vetrarhátíð árið 2009.
 
Verkið sem Arna sýnir að þessu sinni er hluti af sýningaröðinni Staðreynd og er þetta fimmta verkið í þeirri röð.
 
Hér má sjá myndir frá opnun sýningarinnar.

 

Sýningaröðin Staðreynd:

Staðreynd 1… syngjandi sæl og glöð… Verksmiðjunni á Hjalteyri 2008
Staðreynd 2… komdu… hliðarverk sem varð til við vinnslu sýningar í Safnasafninu 2010 
Staðreynd 3… lady sings the blues- oggolítill óður til Billie… Populus Tremula 2011
Staðreynd 4... frá rótum… Flóra í Listagilinu á Akureyri 2011
Staðreynd 5... brotabrot... oggolítill óður til kviksjárinnar Menningarmiðstöðinni Gerðubergi 2012 
 

Um sýningarröðina segir Arna:

Heiti sýninganna vísa í að ég vinn með tiltekið rými eða hús, reyni að hlusta vel eftir eiginleikum þess og þeim áhrifum sem ég verð fyrir og fanga þannig ,,reynd staðarins” eða  ,,raun staðarins”. Ég vinn gjarnan með eigin rödd og framkvæmi gjörning í rýminu sem ég tek upp á myndband og sýni aftur í sama rýminu. Þannig skapa ég eins konar framhald af því. Ég legg mig fram við að sneiða hjá eigin ritskoðun, sem er þó oft aðgangshörð, reyni að taka eftir fyrstu hughrifum og fylgja þeim eftir. Í Verksmiðjunni á Hjalteyri settist Síldarvalsinn, eða það sem ég mundi af honum, í huga minn þegar ég gekk langan gang þar sem verið hafði færiband. Í kjallara Flóru var það moldin sem ég varð svo meðvituð um að væri að baki veggnum en bakhliðin snýr jú að kirkjubrekkunni á Akureyri. Á upptökunni í Populus Tremula raulaði ég eftir minni lög sem Billie Holiday gerði fræg en Populus er meðal annars öflugur tónleikasalur með eigið húsband. Staðreynd 2- ...Komdu...  er lítið hliðarverk eða hliðarsaga eins og það er kallað í barnabókmenntunum, sem varð til þegar ég vann fyrir Safnasafnið. Ég áttaði mig ekki á því verki fyrr en eftir á en það á svo sannarlega heima í Staðreyndaröðinni og bíður einfaldlega síns vitjunartíma.  

  

Staðreynd 5... brotabrot... oggolítill óður til kviksjárinnar

Staðreyndin er sú að þegar ég fór að huga að Gerðubergi sem viðfangefni leituðu gamlar minningar mig uppi en ég hef á tímabilum, allt frá 1990, starfað í Gagn og Gaman listsmiðjum Gerðubergs.  Á Vetrarhátíð árið 2009 setti ég svo upp Lífræna kviksjá, verk sem ég hafði ferðast með á milli staða frá árinu 2005 og bauð gestum og gangandi að gerast þátttakendur og leika sér í kviksjánni. Videoverkið sem ég sýni að þessu sinni vann ég nú í febrúar en þá setti ég kviksjána aftur upp í speglasalnum á neðri hæð Gerðubergs þar sem hún var á sínum tíma. Kviksjáin er því sú staðreynd sem ég að þessu sinni set fram. Gerðuberg er líka svolítið eins og kviksjá, ólíkum brotum er púslað saman  í merkingarbæra heild.

 

Um hugtakið Staðreynd

Merking hugtaksins staðreynd hefur löngum þvælst fyrir mér. Það sem er handan staðreyndanna, yfir þeim og allt um kring vekur frekar athygli mína en þær sjálfar og kveikir ákveðna sannleikstilfinningu. Ég upplifi einhvers konar traust þegar ég skynja hið óræða, óáþreifanlega og afstæða en verð frekar óörugg þegar eitthvað er sett fram sem endanleg staðreynd. Sennilega trúi ég því að afstæðan sé hin eiginlega staðreynd.

 

Meiri upplýsingar um Örnu Valsdóttur og verk hennar á heimasíðunni arnavals.net

 

  

 

2012