Viðburðadagatal 2008
Sýningar frá fyrra ári...
17. nóvember - 13. janúar
Í Boganum: Málverkasýning Togga
Alþýðulistamaðurinn Þorgrímur Kristmundsson sýnir landslagsmálverk
24. nóvember - 13. janúar
Þetta vilja börnin sjá!
Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum ársins 2007
Boðið verður upp á dagskrá fyrir 8 ára skólabörn í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur
6. desember - 13. janúar
Dimmalimm - Íslensku myndskreytiverðlaunin
Í samstarfi við Myndstef, Pennann, Félag íslenskra bókaútgefenda, og Félag íslenskra teiknara
6. desember - 13. janúar
Í Kaffi Bergi: Einn og átta...
Sunna Emanúelsdóttir sýnir handunna jólasveina ásamt skötuhjúunum Grýlu og Leppalúða
24. nóvember - 13. janúar ATH Sýningin verður framlengd til 24. febrúar...
Allt í plati! - Sýning úr söguheimi Sigrúnar Eldjárn rithöfundar og myndlistarmanns
Sýningarstjórar: Anik Todd og Una Stígsdóttir
JANÚAR
2. og 4. janúar
Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur
FEBRÚAR
2. febrúar - 20. apríl
Hið breiða holt
Ljósmyndanámskeið og -sýning þar sem unglingar eiga stefnumót við afa sína eða ömmur!
Sýningarstjórn: Berglind Jóna Hlynsdóttir, myndlistarkona
2. febrúar
Námskeið í öskupokagerð
Í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélagið
6. og 8. febrúar
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og Þorrafundur
6. febrúar
Öskudagsball í Gerðubergi í samstarfi við Félagsmiðstöðina Miðberg... opið öllum börnum!
Kötturinn verður slegin úr tunninni, Jón Víðis, töframaður, kemur fram og hljómsveitin Fjörkarlarnir spila fyrir dansi!
Allir velkomnir - ókeypis aðgangur!
6. - 9. febrúar
Menningarhátíð eldri borgara í Breiðholti á Vetrarhátíð
Umsjón: Þjónustumiðstöð Breiðholts.
9. febrúar
Heimsdagurinn á Vetrarhátíð
Fjölbreyttar listsmiðjur og uppákomur fyrir krakka á öllum aldri.
Í samstarfi við Höfuðborgarstofu, Alþjóðahúsið, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Kramhúsið, Borgarbókasafn Reykjavíkur og Félagsmiðstöðina Miðberg
FEBRÚAR - MARS
Ertu með eitthvað nýtt á prjónunum?
Grunn- og framhaldsnámskeið í prjóni í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Leiðbeinendur: Ásta Kristín Siggadóttir og Halldóra Ingólfsdóttir
MARS
4. mars
25 ára afmæli Gerðubergs!!
Afmælismóttaka og opnun sýninga
4. mars – 7. september
Stefnumót við safnara III
Á safnarasýningunni að þessu sinni verða til sýnis munir sem tengjast tónlist með einum eða öðrum hætti!
Sýningarstjórar: Anik Todd og Una Stígsdóttir
4. mars – 20. apríl
Í Boganum: Sjö landa sýn
María Loftsdóttir, alþýðulistakona, sýnir vatnslitastemmningar frá ferðalögum um Japan, Bólivíu, Brasilíu, Perú, Argentínu, Skotland og Ísland
5. og 7. mars
Kvæðamannafélagið Iðunn
kvæðalagaæfing og aðalfundur
10. og 14. mars
Spor regnbogans – flautu- og leikbrúðuverk fyrir leikskólabörn
Í samstarfi við Strengjaleikhúsið
APRÍL
2. og 4. apríl
Kvæðamannafélagið Iðunn
kvæðalagaæfing og aðalfundur
5. apríl
Unglingabókin – Meira en brjóst og bólur?
Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir
Í samstarfi við IBBY á Íslandi, Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Borgarbókasafnið, Upplýsing, Félag skólabókavarða.
13. apríl
Málþing um ljósmyndasýninguna Hið breiða holt
Þátttakendur: Berglind Jóna Hlynsdóttir, sýningarstjóri og myndlistarmaður, Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og Sigrún Sigurðardóttir, menningarfræðingur og kennari við LHÍ
19. apríl
Ritþing: Stefnumót við Einar Kárason
Stjórnandi: Halldór Guðmundsson
Styrktaraðili: Forlagið
MAÍ
7. og 9. maí
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og vorfundur
3. maí – 7. sept
Í Boganum: Milli fjalls og fjöru
Alþýðulistamennirnir Ósk Guðmundsdóttir og Michael Guðvarðarson sýna málverk
3. maí – 7. sept ATH: Framlengd til 2. nóvember
Jón Baldur Hlíðberg
Kynjaskepnur úr íslenskum þjóðsögum
Sýning á teikningum úr samnefndri bók sem væntanleg er hjá Forlaginu.
JÚNÍ
Ath. Gerðuberg er lokað um helgar í júní og ágúst
JÚLÍ - ÁGÚST
Lokað í Gerðubergi vegna sumarleyfis starfsfólks frá 1. júlí - 5. ágúst
SEPTEMBER
6. september
Safnaramarkaður kl. 13 - 16
í tengslum við sýninguna Stefnumót við safnara. ATH Síðasta sýningarhelgi!
12. september - 2. nóvember
MOLA - Útsaumuð mynstur og tákn frá indíánaættbálkum í Suður-Ameríku.
Sýning í kaffihúsinu.
Eigandi verkanna er Ingveldur Björnsdóttir.
12. september - 2. nóvember
Í Boganum: Flæði
Guðný Svava Strandberg, listakona, sýnir málverk og teikningar.
21. september – 2. nóvember
Sjónþing og yfirlitssýning: Steina Vasulka vídeólistamaður
Sjónþingið stendur frá kl. 13:30 - 16:00.
Stjórnandi þings og sýningarstjóri: Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir
Spyrlar: Halldór Björn Runólfsson, listfræðingur og forstöðumaður Listasafns Íslands og Margrét Elísabet Ólafsdóttir, fagurfræðingur.
27. september
Gersemar
Sýning í Tjarnarsal Ráðhússins úr myndverkasafni Gerðubergs á verkum barna
sem sóttu listsmiðjurnar Gagn og gaman á árunum 1988-2004
OKTÓBER
1. og 3. október
Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur
1. október - Frestað til 8. október!
Handverkskaffi í kaffihúsinu í Gerðubergi
Mætið með sauma- eða prjónakörfuna!
Boðið verður upp á stutta kynningu á sýningunni MOLA.
2. október
Klassík í hádeginu
Á efniskrá eru verk eftir Brahms
Flytjendur: Arnþór Jónsson, selló, og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir
26. október
Dagur raddarinnar: ... og allir vilja vera á sviðinu
Fjöldi þjóðkunnra listamanna koma fram á síðasta degi hljóðfærisins í Gerðubergi!
Í samstarfi við FÍT, FÍS og Jónas Ingimundarson, píanóleikara
NÓVEMBER
5. nóvember
Handverkskaffi í kaffihúsinu í Gerðubergi
Mætið með sauma- eða prjónakörfuna!
Boðið verður upp á stutta handverkskynningu - verður kynnt nánar síðar..
6. nóvember
Klassík í hádeginu
Á efnisskrá eru verk eftir Mozart
Flytjendur: Peter Maté, píanó og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir
5. og 7. nóvember
Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur
11. nóvember
Í Boganum: Minningar
Halldór Viðar Garðarsson sýnir olíumálverk
23. nóvember - 11. janúar
Ungblind. Ljósmyndasýning Björns Sigurjónssonar
Blind ungmenni taka áskorun sinnar eigin fötlunar með þátttöku í sýningunni.
23. nóvember - 11. janúar
Utan-garðs
Málverkasýning Halldóru Helgadóttur
23. nóvember
Kellíngabækur - Bókakynning skrifandi kvenna
DESEMBER
3. og 5. desember
Kvæðamannafélagið Iðunn
Æfing og félagsfundur
13. desember
Desembermarkaður
Í samstarfi við Alþjóðahúsið í Breiðholti og Borgarbókasafnið
18. desember
Klassík í hádeginu
Á efnisskrá eru verk eftir Brahms
Flytjendur: Svava Bernharðsdóttir, víóla, Sigurbjörn Bernharðsson, fiðla, Sólveig Samúelsdóttir (sem kemur í forföllum fyrir Sesselju Kristjánsdóttur, mezzosópran) og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir