Gerðuberg

 

Viðburðadagatal 2007


Sýningar frá fyrra ári...

10. nóvember 2006 – 21. janúar 2007

Í Boganum - Hugarheimar Guðrúnar Bergsdóttur
Útsaumsverk og tússteikningar sem vitna um óhefta tjáningu naívista í hugarheimum sem eiga sér óravíddir.
Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.

18. nóvember - 21. janúar

Brot af því besta
Sýning á úrvali verka úr listaverkaeign Gerðubergs úr listsmiðjum Gagns og gamans

18. nóvember - 21. janúar

Þetta vilja börnin sjá!
Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum ársins 2006

 

JANÚAR

janúar - maí

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfingar, fræðslu- og skemmtifundir fyrsta miðvikudags- og föstudagskvöld hvers mánaðar

20. janúar

Sólin hefur enn ekki sungið sitt síðasta - Ritþing Ingibjargar Haraldsdóttur
Stjórnandi: Silja Aðalsteinsdóttir, ritstjóri Máls og menningar, þýðandi og gagnrýnandi
Spyrlar: Áslaug Agnarsdóttir, sviðsstjóri á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni, cand.mag. í rússnesku, ensku og bókmenntum og Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur og aðjúnkt í íslensku fyrir erlenda stúdenta við Háskóla Íslands

21. janúar

Frá Kölska til kynlífs - Málþing um þýðingar
Í samstarfi við ritstjórn tímaritsins Jón á Bægisá og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
Fyrirlesarar: Ástráður Eysteinsson, bókmenntafræðingur, Berglind Guðmundsdóttir, nemi í þýðingafræðum við Háskóla Íslands, Kendra Jean Willson, M.A. í norrænum fræðum og doktorsnemi við Kaliforníuháskóla í Berkely og Ingibjörg Haraldsdóttir, rithöfundur og þýðandi.

26. janúar

Opnun sýningar hjá Umboðsmanni barna
á verkum sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og gaman á árunum 1988-2004.

 

FEBRÚAR

3. febrúar - 15. apríl

Tími - afstæði - gildi: Sjónþing Rúríar og yfirlitssýning á verkum hennar
Stjórnandi: Laufey Helgadóttir
Spyrlar: Gunnar J. Árnason, listheimspekingur og Halldór B. Runólfsson, listfræðingur.
Verkefnisstjóri sjónþings og sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.

23. febrúar

Safnanótt á Vetrarhátíð
Leiðsögn um yfirlitssýningu Rúríar, Tími - Afstæði - gildi
„Fallin á tíma?“ - Eggert Pálsson og Pétur Grétarsson slagverksleikarar fremja tónlistargjörning

23. febrúar

Menningardagar eldri borgara í Breiðholti á Vetrarhátíð
Verið velkomin á kynningu á daglegri dagskrá, viðburðum, verkefnum
og samstarfsaðilum í Félagsstarfi Gerðubergs

24. febrúar

Heimsdagur barna á Vetrarhátíð:  Afríka - Asía - Evrópa - Ameríka - Ástralía - Suðurskautslandið
Börnum og unglingum á aldrinum 7-15 ára er boðið að taka þátt í spennandi listsmiðjum frá öllum heimshornum!
Í samstarfi við Höfuðborgarstofu, Alþjóðahúsið, Kramhúsið og Félagsmiðstöðina Miðberg.

 

MARS

10. mars - 29. apríl

Í Boganum: Óður til íslenskrar náttúru
Guðlaug I. Sveinsdóttir sýnir ofin veggteppi og málverk

10. mars

Húmor og hugrekki - Barnabókaráðstefna í minningu Astrid Lindgren
Í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur, IBBY á Íslandi, Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, og Upplýsingu - Félag skólasafnskennara.

 

APRÍL

17. apríl

Kaffi Berg: Textílverk og frumsamin ljóð eftir 6. bekkinga í Rimaskóla
Í samstarfi við kennara í textílmennt við Rimaskóla

 

MAÍ

5. maí - 9. september

Í Boganum: Af hjartans list
Ágúst Jónsson sýnir olíumálverk

12. maí - 9. september

Ég bið að heilsa - Bútasaumsamkeppni og sýning í tilefni af 200 ára ártið Jónasar Hallgrímssonar
Í samstarfi við Íslenska bútasaumsfélagið.
Frestur til að senda inn verk er til 1. apríl 2007. Sjá þáttökureglur...
Sjá einnig dagskrá aðalfundar Íslenska bútasaumsfélagsins 12. - 13. maí
Sjá bútasaumsnámskeið sem í boði eru sömu helgi í Gerðubergi...

12. maí - 29. júní

Kaffi Berg: Heitt og kalt
Ferðatöskusýning Samtaka evrópskra bútasaumsfélaga á 17 bútasaumsteppum frá jafnmörgum Evrópulöndum
Í samstarfi við Íslenska bútasaumsfélagið

12. maí - 9. september

Erró - Kvenfólk
Sýning á grafíkverkum úr eigu Listasafns Reykjavíkur

16. maí

Opnun sýningar hjá Miðstöð heilsuverndar barna í Mjódd
á myndverkum barna sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og gaman á árunum 1988-20031. júlí - 14. ágúst

 

JÚNÍ

6. júní

Sýning á Miðstöð mæðraverndar í Mjódd
Sýning á myndverkum barna sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og gaman á árunum 1988-2003

 

JÚLÍ-ÁGÚST 

Lokað vegna sumarleyfa í júlí.

 

SEPTEMBER

22. september - 11. nóvember

Í Boganum: Úr ríki náttúrunnar
Alþýðulistakonan Guðmunda S. Gunnarsdóttir sýnir málverk og myndverk úr rekaviði og steinum

22. september - 11. nóvember

Handverkshefð í hönnun: - framtíðin er í okkar höndum
Í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Handverk og hönnun

 

OKTÓBER

Október - nóvember

Ertu með eitthvað á prjónunum?
Grunn- og framhaldsnámskeið í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Sjá www.heimilisidnadur.is

Október - desember

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfingar, fræðslu- og skemmtifundir fyrsta miðvikudags- og föstudagskvöld hvers mánaðar.
Sjá www.rimur.is

17. október

Tónleikar - Tríó Vadim Fedorov
Tríóið skipa Vadim Fedorov (harmonika),
Gunnar Hilmarsson (gítar) og Leifur Gunnarsson (kontrabassi)
Frönsk musett- og valssveifla í bland við heims- og jazztónlist

 

NÓVEMBER

17. nóvember - 13. janúar

Í Boganum: Málverkasýning Togga
Alþýðulistamaðurinn Þorgrímur Kristmundsson sýnir landslagsmálverk

24. nóvember

Allt í plati!
Ritþing og sýning:  Sigrún Eldjárn rithöfundur og myndlistarmaður situr fyrir svörum
Stjórnandi: Sigþrúður Gunnarsdóttir, bókmenntafræðingur
Spyrlar: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur og tónlistarmaður og Margrét Tryggvadóttir, bókmenntafræðingur.
Sýningarhönnun: Una Stígsdóttir og Anik Todd.

24. nóvember - 13. janúar

Þetta vilja börnin sjá!
Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum ársins 2007
Boðið verður upp á dagskrá fyrir 8 ára skólabörn í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur

25. nóvember

Dagur hljóðfærisins: Fiðlan ræður ríkjum!
Í samstarfi við Félag íslenskra tónlistarmanna

 

DESEMBER

6. desember

Dimmalimm - Íslensku myndskreytiverðlaunin
Í samstarfi við Myndstef, Pennann, Félag íslenskra bókaútgefenda, og Félag íslenskra teiknara

6. desember - 13. janúar

Í Kaffi Bergi: Einn og átta...
Sunna Emanúelsdóttir sýnir handunna jólasveina ásamt skötuhjúunum Grýlu og Leppalúða


 

 

2011