Viðburðadagatal 2006
Sýningar frá fyrra ári...
11. nóvember – 8. janúar
Í Boganum: Sólveig Eggerz Pétursdóttir sýnir vatnslitamyndir
19. nóvember – 8. janúar
Eggert Magnússon. Ungur undir silfurhærum
Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir
19. nóvember – 8. janúar
Þetta vilja börnin sjá! og afhending Íslensku myndskreytiverðlaunanna, Dimmalimm
Opnun sýningar á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum ársins 2005
JANÚAR
21. janúar – 5. mars
Ritþing. Thor Vilhjálmsson.
Yfirlitssýning á myndverkum Thors í tengslum við Ritþingið.
Verkefnisstjóri ritþings og sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.
26. janúar
Kynslóðir saman í Breiðholti.
Nemendur úr Seljaskóla koma í heimsókn
27. janúar - 19. mars
Í Boganum: Ort í ull
Sigrún Björgvinsdóttir sýnir verk úr þæfðri ull
FEBRÚAR
23. febrúar
Kynslóðir saman í Breiðholti
Nemendur úr Fellaskóla koma í heimsókn
24. febrúar
Þátttaka í Safnanótt á Vetrarhátið. "Séð með þínu ljósi"
Sýning Thors Vilhjálmssonar skoðuð með vasaljósi og farið í ratleik.
Borgarbóksafnið og Gerðuberg verða með markað, opnun í Félagsstarfinu og Sérviskusafnarar sýna undarlega hluti.
Aldur og æviskeið
Samstarf Félagsstarfsins við Ártúnsskóla
26. febrúar
Söngur og sund á sunnudegi
Sungin verða lög eftir Ómar Ragnarsson fréttamann og lagasmið.
Signý Sæmundsdóttir söngkona leiðir sönginn. Undirleikari er Haukur Heiðar.
Umsjón: Ingveldur Ýr Jónsdóttir, söngkona.
MARS
5. mars
Söngur og sund á sunnudegi
Sungin verða lög og textar Ingibjargar Þorbergs
Umsjón: Ingveldur Ýr Jónsdóttir, söngkona.
12. mars
Söngur og sund á sunnudegi
Sungin lög sem söngkonan Ellý Vilhjálms gerði vinsæl.
Umsjón: Ingveldur Ýr Jónsdóttir, söngkona.
18. mars - 30. apríl
Sjónþing: Steinunn Sigurðadóttir fatahönnuðar.
Yfirlitssýning á verkum Steinunnar til 30. apríl.
18. mars
Heillandi heimur: Goð, börn og valkyrjur - Barnabókaráðstefna.
Í samstarfi við IBBÝ á Íslandi, Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Borgarbókasafn Reykjavíkur og Upplýsingu - Félag skólasafnskennara.
19. mars
Söngur og sund á sunnudegi
Raggi Bjarna syngur íslensk sjómannalög sem styrkja hug og stæla lund!
Umsjón: Ingveldur Ýr Jónsdóttir, söngkona.
24. mars - 30. apríl
Í Boganum: Margræðir heimar
Valur Sveinbjörnsson naívisti sýnir málverk.
Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.
26. mars
Söngur og sund á sunnudegi
Sungin lög eftir Jón Ásgeirsson tónskáld og hann kemur í heimsókn.
Umsjón: Ingveldur Ýr Jónsdóttir, söngkona.
30. mars
Kynslóðir saman í Breiðholti
Nemendur úr Hólabrekkuskóla koma í heimsókn
MAÍ
6. maí – 10. september
Sagnir og seiðmenn
Guðjón Stefán Kristinsson skrúðgarðyrkjumeistari og listamaður
sýnir höggmyndir úr rekaviði og hleðslur úr grjóti, torfi og gleri
6. maí – 10. september
Kvunndagsfólk
Jón Ólafsson myndlistarmaður sýnir portrett.
Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.
6. maí – 10. september
Í Boganum: Andblær frá öðrum heimi
Ketill Larsen alþýðulistamaður sýnir málverk
15. maí
Aldur og æviskeið
Þátttakendur úr stóru upplestrarkeppninni koma í Gerðuberg
20. maí – 29. maí
Sendu mér sólskin.
Menningardagar í Félagsstarfi,- kynning, fræðsla, tónlist, myndlist, og fl. Einnig verður listmunasýning og kynning á samstarfsaðilum.
JÚNÍ
13. og 14. júní
Mannrækt-trjárækt
Kynslóðirnar mætast við gróðurreit og gróðursetningu við Gæðareit.
21. júní
Jónsmessufagnaður í Félagsstarfi Gerðubergs
Farið verður að Básnum í Ölfusi
SEPTEMBER
15. september – 5. nóvember.
Í Boganum: Kompósísjónir
Sigurbjörn Kristinsson sýnir abstraktmálverk
23. september – 12. nóvember
Flóðhestar og framakonur: Afrískir minjagripir á Íslandi
Sýning í samstarfi við Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur, mannfræðing.
Sýningarstjórn: Stígur Steinþórsson og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir.
23. september – 12. nóvember
Reykjavík úr launsátri - Ljósmyndasýning Ara Sigvaldasonar
Í tilefni af 220 ára afmæli Reykjavíkurborgar
OKTÓBER
október - desember
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfingar, námskeið, fræðslu- og skemmtifundir fyrsta miðvikudags- og föstudagskvöld hvers mánaðar. Fyrsta æfingin verður haldin miðvikudaginn 4. október kl. 20 og fyrsti fundurinn föstudaginn 6. október kl. 20.
4. október - 1. nóvember
Rímnakveðskapur og bragfræði - Námskeið á vegum Kvæðamannafélagsins Iðunnar
Kennarar: Njáll Sigurðarson og Steindór Andersen
Kennt verður fimm miðvikudagskvöld kl. 20:00-22:30
Skráning: netfang: gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is, s. 575 7706
20. og 21. október
100 ára rithöfundarafmæli Gunnars Gunnarssonar
Leiklestur, málþing og ljóðatónleikar
Í samstarfi við Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri og Rithöfundasamband Íslands
Ath. leiklesturinn fer fram í Gunnarshúsi við Dyngjuveg...
NÓVEMBER
12. Nóvember
Söngperlur Sigvalda Kaldalóns - Útgáfutónleikar í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs
Flytjendur: Auður Gunnarsdóttir, Bergþór Pálsson, Eyjólfur Eyjólfsson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson, Hulda Björk Garðarsdóttir og Jónas Ingimundarson. Hljómdiskarnir Ég lít í anda liðna tíð - Sönglög Sigvalda Kaldalóns eru gefnir út í samstarfi við ættingja tónskáldsins og Smekkleysu.
10. nóvember – 21. janúar
Í Boganum - Hugarheimar Guðrúnar Bergsdóttur
Útsaumsverk og tússteikningar sem vitna um óhefta tjáningu naívista í hugarheimum sem eiga sér óravíddir
18. nóvember - 21. janúar
Brot af því besta
Sýning á úrvali verka úr listaverkaeign Gerðubergs úr listsmiðjum Gagns og gamans
18. nóvember - 21. janúar
Þetta vilja börnin sjá! Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum ársins 2006
Dimmalimm– Íslensku myndskreytiverðlaunin verða afhent á við opnun sýningarinnar.
Í samstarfi við Myndstef, Pennann, Félag íslenskra bókaútgefenda, og Félag íslenskra teiknara