Gerðuberg

 

Viðburðadagatal 2005


JANÚAR

13. janúar

Ljóðatónleikar Gerðubergs - Sönglög Sigvalda Kaldalóns
Í tilefni af útgáfu hljómdisksins Svanasöngur á heiði
Tónleikarnir eru haldnir í Salnum í Kópavogi
Aðgangseyrir: Kr. 1.500.-. Miðasala í Salnum og á www.salurinn.is
Flytjendur: Ólafur Kjartan Sigurðarson, barítón, Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir, mezzósópran, Sesselja Kristjánsdóttir, mezzósópran, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór, Snorri Wium, tenór og Jónas Ingimundarson leikur undir á píanó.
Í samstarfi við Salinn í Kópavogi

15. janúar – 27. febrúar

Rosemarie Trockel frá Þýskalandi sýnir ljósmyndir, skúlptúrar og innsetningar
Í samstarfi við Göethe-Zentrum Reykjavík og Listaháskóla Íslands

21. janúar – 13. mars  

Í Boganum: Listaverk úr mannshárum
Alþýðulistakonan Sigríður Salvarsdóttir í Vigur 

30. janúar - 11. apríl

Undir drekavæng - Barnaópera.
Tónlist: Mist Þorkelsdóttir. Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir
Flytjendur: Bergþór Pálsson, tenór, Marta G. Halldórsdóttir, sópran og Örn Magnússon.
Fjölskyldusýningar:
Frumsýning Myrkra músíkdaga sunnudaginn 30. janúar kl. 14
Börnin fá að föndra eigin fuglagrímur í klukkutíma áður en sýningin hefst, þ.e. kl. 13.
2. sýning sunnudaginn 30. janúar kl. 16. Föndur hefst kl. 15.
3. sýning sunnudaginn 6. febrúar kl. 15. Föndur hefst kl. 14.
4. sýning sunnudaginn 13. febrúar kl. 15. Föndur hefst kl. 14. 
Sýningar fyrir grunnskóla- og leikskólabörn:
Mánudagana 14/2, 21/2, 28/2, 7/3, 14/3, 21/3, 4/4 og 11/4.
Bókanir: gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is
Í samstarfi við Strengjaleikhúsið og Myrka músíkdaga
Aðgangseyrir fyrir fullorðna og börn á fjölskyldusýningar: Kr. 1.000
Aðgangseyrir fyrir leikskólabörn: kr. 350.- Kennarar fá frítt inn.

 

FEBRÚAR

18. febrúar kl. 18:00 - 24:00

Vetrarhátíð Reykjavíkur - Safnanótt
Séð með þínu ljósi - Upplifið sýningu Rosemarie Trockel með vasaljósalýsingu!
Tónlistarmennirnir Dean Ferrel og Pétur Grétarsson verða með tónlistargjörning með ljóðalestri í boði Vetrarhátíðarinnar.

Opnun sýningar á Barnaspítala Hringsins úr listaverkasafni Gagn og gaman
Sýningarstjórn: Sigríður Ólafsdóttir, myndlistarkona

 

MARS

5. mars kl. 9:00 - 16:00

Hvar er barnamenningin?
Málþing á vegum Barnamenningarsjóðs í samstarfi við Gerðuberg og Samband íslenskra sveitarfélaga. 

Skráning í Gerðubergi: gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is eða s. 575 7706
Ráðstefnugjald: Kr. 3.500.- Greiðist við skráningu.
Menntamálaráðuneytið styrkir málþingið.
Undirbúningsnefnd: Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir, stjórn Barnamenningarsjóðs, Anna Björnsdóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ragnheiður Gestsdóttir, listamaður, rithöfundur og félagi í Samtökum um barnamenningarstofnun og Ólöf Ingólfsdóttir, stjórn Barnamenningarsjóðs.

11. mars – 17. apríl 

„Hratt og hömlulaust”- Raunveruleiki íslensku fjölskyldunnar?
Sýning unnin af Ljósberahópnum - ÍTR, Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Félagsþjónustan, Lögreglan í Reykjavík, Lögreglan í Kópavogi, Samfok, Neyðarmóttakan og Landlæknisembættið.
Á efri hæð og setustofu.  

12. mars

Barnabókaráðstefna í minningu 200 ára afmælis H.C. Andersen
Í samstarfi við IBBÝ, Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Borgarbókasafnið og Félag skólasafnskennara

18. mars - 24. apríl

Í Boganum: Alþýðulistakonan María Jónsdóttir
Klippimyndir, vatnslita- og olíumyndir, myndir málaðar á mulið grjót og fleira Í Boganum

 

APRÍL

2. apríl kl. 14:00 - 16:00

Ritþing - Vilborg Dagbjartsdóttir skáldkona situr fyrir svörum

29. apríl – 11. september

Í Boganum: Litaljóð
Listmálarinn Lóa Guðjónsdóttir sýnir verk unnin í vatnslit og olíu

29. apríl- 6. maí

Menningardagar í Félagsstarfi
Kynning, fræðsla, tónlist, myndlist, dansleikur, íþróttir og fleira

30. apríl – 11. september

Stefnumót við safnara II
Á sýningunni má sjá brot af því besta úr söfnum íslenskra safnara. Á sýningartímanum verður boðið upp á fyrirlestraröð, bíósýningar og safnaramarkað. Sjá dagskrá...
Í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna, Myntsafnarafélag Íslands, Sorpu og Umhverfissvið Reykjavíkurborgar.

 

JÚNÍ

Gagn og gaman - Boðið verður upp á vikusmiðjur. 
Smiðjustjóri: Harpa Björnsdóttir, myndlistarkona

 

ÁGÚST

15. ágúst – 11. september

Stefnumót við safnara II opnar aftur eftir sumarleyfi
Á sýningunni má sjá brot af því besta úr söfnum íslenskra safnara. Á sýningartímanum verður boðið upp á fyrirlestraröð, bíósýningar og safnaramarkað. Sjá dagskrá...
Í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna, Myntsafnarafélag Íslands, Sorpu og Umhverfissvið Reykjavíkurborgar.

 

SEPTEMBER

16. september – 6. nóvember

Í Boganum: Klippimyndir eftir Einar Árnason frá Breiðdalsvík

24. september kl. 13:30 - 16:00

Sjónþing - Þórdís Zoega hönnuður verður á Sjónþingi Gerðubergs
Í samstarfi við FHI - Félag húsgagna- og innanhússhönnuða
Verkefnisstjóri sjónþings og sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir.

24. september – 13. nóvember

Yfirlitssýning á verkum Þórdísar Zoega hönnuðar

27. september

Undir Drekavæng - Barnaópera. Sýningar hefjast á ný!
Í samstarfi við Strengjaleikhúsið.

 

OKTÓBER

16. október

Dagur hljóðfærisins 2005 - „Hin mjúka miðja víólunnar"
Í samstarfi við Félag íslenskra tónlistarmanna.
Aðgangseyrir: Kr. 1.000.- Tónlistarnemar: kr. 500- gegn framvísun skírteinis.

16. október

Nýtt! Söngur og sund á sunnudegi
Söngur og sund sunnudagana 16. október - 4. desember.
Með Ingveldi Ýri Jónsdóttur söngkonu. Syngjum saman því það er svo gaman!

19. október

Opnun sýningar á Barnspítala Hringsins úr listaverkaeign Gagns og gaman
Sýningarstjórn: Sigríður Ólafsdóttir

 

NÓVEMBER

11. nóvember – 8. janúar 2006

Í Boganum: Áhrif hins liðna og dagsins í dag
Sólveig Eggerz Pétursdóttir sýnir vatnslitamyndir

19. nóvember

Eggert Magnússon. Ungur undir silfurhærum
Opnun kl. 15:00 á efri hæð Gerðubergs.

19. nóvember

Þetta vilja börnin sjá! og afhending Íslensku myndskreytiverðlaunanna, Dimmalimm
Opnun sýningar á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum ársins 2005


 

2011