Viðburðadagatal 2002
JANÚAR
12. janúar - 17. febrúar
Þýskar tískuljósmyndir í 50 ár, 1945-1995
27. janúar
Mozart tónleikar í tilefni af fæðingardegi hans
Flutt verður píanó-tríó, píanó-sónata, dúó og fleira.
Flytjendur: Laufey Sigurðardóttir fiðla, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla,
Richard Talkowsky selló og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanó.
FEBRÚAR
8. febrúar
Bragi Þór Guðjónsson sýnir í Félagsstarfinu
10. febrúar
Ljóðatónleikar Gerðubergs
Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópran og Richard Simm píanóleikari flytja Sígaunaljóð Brahms, frönsk kabarettlög og suður-Evrópsk þjóðlög.
16. febrúar
Atli Heimir Sveinsson á Tónþingi á Myrkum músíkdögum
Hér er um að ræða fyrsta Tónþing Gerðubergs en forminu svipar til Sjón- og Ritþinga.
Stjórnandi: Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður.
Spyrlar: Guðni Franzson tónlistarmaður og Guðmundur Emilsson tónlistarráðunautur.
Flytjendur: Áshildur Haraldsdóttir flauta, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó, Jónas Ingimundarson píanó, Ólafur Kjartan Sigurðarson baríton, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðla, Þór Tulinius leikari og Atli sjálfur.
Hér er um að ræða fyrsta Tónþing Gerðubergs en forminu svipar til Rit-og Sjónþinga Gerðubergs sem þegar hafa skipað sér fastan sess í íslensku menningarlífi. Tónþinginu er ætlað að veita innsýn í lífshlaup og feril Atla Heimis Sveinssonar, tónskálds en hann er löngu þjóðþekktur fyrir tónlist af fjölbreyttu tagi; hvort sem um er að ræða nútímatónlist í formi stórra hljómsveitarverka og einleiksverka, óperur, raftónsmíðar eða hugljúfa leikhústónlist. Enda má segja að Atli Heimir sé eitt fjölhæfasta og afkastamesta tónskáld Íslendinga. Á Tónþinginu verða flutt brot úr verkum hans auk þess sem búast má við fjörugum umræðum því Atli Heimir er bæði ástsæll og umdeildur í senn.
23. febrúar - 23. mars
Þetta vil ég sjá. Eva María Jónsdóttir velur verk á sýninguna.
Myndlistarmenn: Anna Líndal, Daníel Magnússon, Finnbogi Pétursson, Georg Guðni, Guðmunda Ásgeirsdóttir, Guðrún Marinósdóttir, Halldór Ásgeirsson, Helgi Þorgils, Hrafnkell Sigurðsson, Húbert Nói, Ilmur Stefánsdóttir, Ólöf Nordal, Ósk Vilhjálmsdóttir, Óskar Jónasson, Páll Guðmundsson, Sigríður Salvarsdóttir, Úlfur K. Grönvold, Valgarður Gunnarsson.
MARS
16. mars
Ólafur Haukur Símonarson á Ritþingi
Stjórnandi: Kristján Þórður Hrafnsson skáld og bókmenntafræðingur.
Spyrlar: Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri og Guðrún Gísladóttir leikkona.
23. mars
Út um víðan völl - Barnabókaráðstefna í Gerðubergi
Unnur Hjaltadóttir: Að fóta sig í fortíðinni.
Úlfhildur Dagsdóttir: Myndasögur af ýmsu tagi.
Anna Heiða Pálsdóttir: Saga og arfleifð.
Rakel Pálsdóttir: Hárin á höfði mér rísa: Hryllingssögur meðal barna og unglinga.
Aðstandendur: IBBÝ, SÍUNG, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Félag skólasafnskennara, Upplýsing og Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
APRÍL
13. apríl - 21. apríl
Vorhátíð Íslenska bútasaumsfélagsins og sýning félaga úr klúbbnum Bútalist á Selfossi
Hátíðin er í tengslum við aðalfund félagsins sem verður haldinn sama dag kl. 12:00 -13:00 á sama stað. Haldin verða stutt námskeið fyrir félagsmenn og helstu bútasaumsverslanir verða með kynningar.
Íslenska bútasaumsfélagið var stofnað 28. nóvember 2000 og eru félagsmenn nú rúmlega fjögur hundruð, þar af þriðjungur af landsbyggðinni. Félagið heldur fundi mánaðarlega yfir vetrartímann og gefur út myndarlegt fréttabréf sem áætlað er að komi út tvisvar á ári. Vorhátíðin er lokapunktur á vetrarstarfi félagsins en sú nýbreytni verður tekin upp í sumar að halda sumarfund helgina 14.-16. júní að Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði.
26. apríl
Hugi Jóhannesson sýnir í Félagsstarfinu
27. apríl
Útskriftarsýning Fjölbrautarskólans í Breiðholti
Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er öflugt listasvið og það eru útskriftarnemendurnir sem sýna afrakstur fjögurra ára vinnu.
MAÍ
6. - 10. maí
Menningardagar í Félagsstarfinu
21. - 26. maí
Týndar mömmur og talandi beinagrindur
Barnasýning frá Pero - leikhúsinu í Stokkhólmi.
Höfundur og aðalleikari: Bára Magnúsdóttir.
Sellóleikari: Katrin Forsmo.
Leikstjórar: Magnus Lundblad og Peter Engkvist.
Sýnt verður í Gerðubergi 21. - 26. maí. Ein sýning verður með heyrnleysingjatúlki.
Miðar eru seldir á skrifstofu Gerðubergs, sími 575 7700.
JÚNÍ - JÚLÍ
Gagn og gaman - listsmiðjur barna
ÁGÚST
30. ágúst
Vi - Norræn farandssýning með verkum unglinga.
Við - hvaðan erum við, hver erum við, hvert stefnum við?
Ljósmyndir, dagbókarbrot og uppáhaldshlutir norrænna unglinga.
SEPTEMBER
20. september
Brynja Þórðardóttir sýnir í Félagsstarfinu
22. september
Dagur hljóðfærisins - Fiðlufjölskyldan
Dagur hljóðfærisins, sem haldinn er í samstarfi við Félag íslenskra tónlistarmanna, er að þessu sinni tileinkaður "fiðlufjölskyldunni", sem er samansett úr átta fiðlum sem eru ólíkar af stærð og hljómburði.
28. september
Manfreð Vilhjálmsson á Sjónþingi
OKTÓBER
26. október - Frumsýning
27. október - Fyrsta sýning
Sýning Leikbrúðulands.
Tveir leikþættir: Fjöðrin sem varð að 5 hænum og Ævintýrið um Stein Bollason.
Leikgerð Leikbrúðulands. Leikstjóri Örn Árnason og leikmyndahönnuður Stígur Steinþórsson. Erna Guðmarsdóttir og Helga Steffensen annast brúðugerðina og stjórna brúðunum. Tónlist og upptaka: Máni Svavarsson. Sýningin er ætluð börnum allt frá 3ja ára og upp úr.
NÓVEMBER
2. og 3. nóvember
Sýning Leikbrúðulands.
Tveir leikþættir: Fjöðrin sem varð að 5 hænum og Ævintýrið um Stein Bollason.
Leikgerð Leikbrúðulands. Leikstjóri Örn Árnason og leikmyndahönnuður Stígur Steinþórsson. Erna Guðmarsdóttir og Helga Steffensen annast brúðugerðina og stjórna brúðunum. Tónlist og upptaka: Máni Svavarsson. Sýningin er ætluð börnum allt frá 3ja ára og upp úr.
9. nóvember
Matthías Johannessen á Ritþingi
Sama dag verður opnuð sýning á verkum úr eigu Matthíasar en hann hefur þekkt marga af helstu myndlistarmönnum þjóðarinnar og á merkilegt safn myndlistar.
22. nóvember
Árni Sighvatsson sýnir í Félagsstarfinu
23. nóvember
Viltu lesa fyrir mig? - Barnadagskrá.
Upplestur, tónlist, leiklist - viltu vera með?
Sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum íslenskum barnabókum.